Langar þig í Cavalier hvolp?

Það fyrsta sem þú þarft að athuga - hefur þú eða fjölskyldan tíma og þolinmæði fyrir lítinn hvolp?

Cavalier er mjög háður eiganda sínum og getur aðeins verið einn heima í örfáa tíma á dag og hvolpur enn skemur.

Athugaðu líka að þetta er 10 - 14 ára skuldbinding. Reyndar mjög ánægjuleg skuldbinding í flestum tilfellum.

Hvolpur þarfnast mikillar athygli og umönnunar og það getur tekið töluverðan tíma og vinnu að gera hann húshreinan.

Cavalier þarf að hafa aðgang að garði, þar sem hann getur hreyft sig frjáls. Til þess þarf garðurinn að vera vel og örugglega lokaður.

Auk þess er hann tilbúinn í alla þá göngutúra sem eigandinn býður upp á, nánast hvernig sem viðrar, en hann elskar reyndar líka að kúra upp í sófa hjá þér ef þú kýst það heldur. Hvolpa á reyndar ekki að fara með í langar taumgöngur fyrr en eftir 6 til 8 mánaða aldur.

Stundum er hægt að fá eldri hunda. Sumum hentar það betur - eldri hundar eru rólegri og þroskaðri - búnir að hlaupa af sér hornin ef svo má segja, orðnir húshreinir og hættir að naga allt sem að kjafti kemur.

Allar upplýsingar um Cavalier hvolpa er hægt að finna á www.cavalier.is undir hvolpafréttir eða hjá Maríu Tómasdóttur, formanni Cavalier deildarinnar, í síma 565-7442


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband